Handbolti

Rambo hjálpaði Haukum að verða Íslandsmeistarar - myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Freyr kann að setja saman skemmtileg myndbönd. Mynd/Daníel
Freyr kann að setja saman skemmtileg myndbönd. Mynd/Daníel

Freyr Brynjarsson, hornamaður Hauka, var afar duglegur við að búa til myndbönd fyrir félaga sína á síðustu leiktíð. Hann hefur verið rólegur í kvikmyndagerðinni í vetur en gerði undantekningu fyrir leikinn í dag.

Þá setti Freyr loksins saman myndband sem átti að kveikja í Haukunum fyrir oddaleikinn gegn Val. Það virðist hafa virkað.

Það er eðalbandið AC/DC sem leikur fyrir dansi í myndbandinu en þar eru tilvitnanir í stórmenni kvikmyndasögunnar á borð við John J. Rambo og Rocky Balboa.

Sjón er sögu ríkari en hægt er að sjá myndbandið á heimasíðu Haukastrákanna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×