Fótbolti

Kristinn dæmir leik Shaktar og Kalmar í kvöld

Arnar Björnsson skrifar
Kristinn Jakobsson er að dæma á alþjóðlegu æfingamóti á Spáni.
Kristinn Jakobsson er að dæma á alþjóðlegu æfingamóti á Spáni. Mynd/GettyImages
Knattspyrnudómararnir Kristinn Jakobsson og Þóroddur Hjaltalín dæma á Copa del Sol mótinu á Marbella á Spáni en þar keppa sex lið frá Danmörku, Svíþjóð og Noregi auk Shaktar Donetsk frá Úkraínu og CSKA Moskvu.

Kristinn dæmir leik Shaktar og Kalmar í kvöld en Þóroddur dæmir viðureign Elfsborg og Rosenborg á morgun.

Það eru einnig þrír íslenskir aðstoðardómarar með í för, Áskell Þór Gíslason, Frosti Viðar Gunnarsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×