Íslenski boltinn

Þarf að draga um leikdaga

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, fær ekki að vita alveg strax hvenær Cristiano Ronaldo mætir til landsins.
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, fær ekki að vita alveg strax hvenær Cristiano Ronaldo mætir til landsins.

Í dag funduðu í Kaupmannahöfn fulltrúar þeirra þjóða sem prýða riðil Íslands í undankeppninni fyrir Evrópumótið 2012. Reynt var að ná samkomulagi um leikdaga riðilsins en það bar ekki árangur.

Allir voru með einhverjar sérstakar óskir og varð niðurstaðan því sú að samkomulag myndi ekki nást. Því verður dregið um leikdaga en Knattspyrnusamband Evrópu mun sjá um þann drátt í næstu viku.

Portúgal, Danmörk, Noregur og Kýpur eru með Íslandi í riðli en fyrstu leikirnir verða í september á þessu ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×