Körfubolti

Keflvíkingar komnir í undanúrslit Subwaybikarsins eftir stórsigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Skúlason stýrði Keflavík til sigurs í kvöld gegn sínum gamla þjálfara.
Guðjón Skúlason stýrði Keflavík til sigurs í kvöld gegn sínum gamla þjálfara. Mynd/Daníel
Keflvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Subwaybikars karla eftir tuttugu stiga sigur á nágrönnum sínum úr Njarðvík, 93-73, í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar höfðu mikla yfirburði allan leikinn og verða í pottinum ásamt Grindavík, ÍR og Snæfelli þegar dregið verður á miðvikudaginn.

Keflvíkingar fóru illa með sína gömlu félaga sem nú spila með Njarðvíkurliðinu. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur frá 1997 til 2009, þjálfar Njarðvíkurliðið og með liðinu leika Magnús Þór Gunnarsson og Nick Bradford, margfaldir Íslandsmeistarar með Keflavík.

Keflavíkurliðið hélt Njarðvíkingum í 13 stigum og 19 skotnýtingu (3 af 16) í fyrsta leikhluta og var komið með 21 stigs forskot í hálfeik, 51-30, eftir að hafa unnið annan leikhlutann 30-17. Keflavíkurliðið náði mest 25 stiga forskoti í öðrum leikhlutanum og sóknarleikur Njarðvíkur (7 af 30 í skotum + 13 tapaðir) var skelfilegur.

Keflavíkurliðið skoraði síðan fimm fyrstu stig seinni hálfleiks og komst 26 stigum yfir, 56-30, og Njarðvíkingar áttu áfram fá svör við góðum leik nágranna sinna úr Keflavík. Njarðvík náði þó að minnka muninn í 18 stig, 72-54, fyrir lokaleikhlutann og munurinn varð minnstur 14 stig í fjórða leikhluta áður en Keflvíkingar kláruðu leikinn.

Miklu munaði um það að Keflavíkurvörnin hélt lykilmönnum Njarðvíkur, Magnúsi Þór Gunnarssyni og Jóhanni Árna Ólafssyni, í samtals 6 stigum í fyrstu þremur leikhlutanum en þeir félagar hittu aðeins úr 2 af fyrstu 18 skotum sínum í leiknum. Magnús Þór skoraði síðan 5 stig í lokaleikhlutanum og bjargaði andlitinu.

Draelon Burns var atkvæðamestur í Keflavíkurliðinu með 29 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar, Gunnar Einarsson skoraði 23 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson var með 18 stig, 8 fráköst og 6 stolna bolta.

Nick Bradford var með 16 stig, 14 fráköst og 5 villur hjá Njarðvík, Hjörtur Hrafn Einarsson skoraði 11 stig og Páll Kristinsson var með 10 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×