Íslenski boltinn

Ingvar Kale í landsliðið

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Ingvar Þór Kale hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðhópinn sem mætir Noregi og Danmörku í undankeppni EM. Þetta er í fyrsta sinn sem Ingvar er valinn í liðið.

Ingvar hefur staðið sig vel með Blikum í sumar en hann hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands.

Ingvar er 27 ára gamall og verður 22. leikmaðurinn í landsliðshópnum. Fyrir eru tveir markmenn, þeir Gunnleifur Gunnleifsson og Árni Gautur Arason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×