Handbolti

AG í smá vandræðum með Viborg en vann tíunda leikinn í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arnór Atlason skoraði þrjú mörk í kvöld og Snorri Steinn skoraði tvö mörk.
Arnór Atlason skoraði þrjú mörk í kvöld og Snorri Steinn skoraði tvö mörk. Myn/AG Kaupmannahöfn
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason skoruðu saman fimm mörk þegar AG Kaupmannahöfn vann 26-23 útisigur á Viborg í danska handboltanum í kvöld. Þetta var tíundi sigur liðsins í röð en AG hefur nú fimm stiga forskot á toppnum.

Arnór skoraði þrjú mörk en Snorri Steinn var með tvö mörk. Niclas Ekberg var markahæstur með fimm mörk en Mikkel Hansen skoraði fjögur mörk.

AG-liðið hefur unnið 12 leiki og gert eitt jafntefli í fyrstu þrettán leikjum sínum í dönsku úrvalsdeildinni en liðið hefur fimm stigum meira en Skjern og Århus sem eru jöfn í 2. til 3. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×