Íslenski boltinn

Erlendur dómari á bikarúrslitaleik KR og FH

Elvar Geir Magnússon skrifar
Erlendur Eiríksson verður með flautuna á Laugardalsvelli á laugardagskvöld.
Erlendur Eiríksson verður með flautuna á Laugardalsvelli á laugardagskvöld. Mynd/Valli

Um komandi helgi verður leikið til úrslita í bikarkeppni KSÍ. Úrslitaleikurinn í karlaflokki verður milli KR og FH en beðið er þessa leiks með mikilli eftirvæntingu og búist við talsvert betri mætingu en undanfarin ár.

Dómari leiksins verður málarameistarinn Erlendur Eiríksson sem er að fara að dæma sinn fyrsta bikarúrslitaleik í karlaflokki. Erlendur er 39 ára og dæmir fyrir Fram.

Hann hefur dæmt í efstu deild um margra ára skeið og hefur staðið sig mjög vel í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×