Íslenski boltinn

Fjölskylduhátíð í tengslum við Frakkaleikinn á laugardag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KSÍ stendur fyrir fjölskylduhátíð fyrir kvennalandsleik Íslands og Frakklands á Laugardalsvelli á laugardag. Boðið verður upp á pulsur fyrir börnin, drykki í boði Vífilfells, hoppukastala, boltaþrautir, Coke fótboltahöll og ýmislegt skemmtilegt.

Hátíðin hefst kl. 14:30 og því er um að gera að mæta snemma og gera sér glaðan dag, ná góðri upphitun fyrir leikinn, fá sér eins og eina pulsu, spreyta sig á boltaþrautum og hoppa og skoppa í þar til gerðum kastölum. Leikurinn sjálfur hefst kl. 16:00.

KSÍ vonast eftir góðri mætingu á fjölskylduhátíðina og biðlar auk þess til þess að fólk mæti að sjálfsögðu í bláum litum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×