Íslenski boltinn

Stórsigur KR á Fram - myndasyrpa

Mynd/Daníel

KR tryggði sér sæti í úrslitaleik VISA-bikarkeppni karla með 4-0 stórsigri á Fram í undanúrslitum í gær. Íslandsmeistarar FH bíða í úrslitaleiknum sem fer fram 14. ágúst.

Björgólfur Takefusa skoraði tvö marka KR og þeir Óskar Örn Hauksson og Grétar Sigfinnur Sigurðsson eitt hvor.

Kristján Hauksson, fyrirliði Fram, fékk að líta rauða spjaldið á 29. mínútu þegar staðan var enn markalaus og nýttu KR-ingar sér liðsmuninn vel.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á staðnum og má sjá myndir hans hér fyrir neðan.



Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×