Íslenski boltinn

Aron Einar: Toppurinn á tilverunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

„Þetta er ólýsanlegt. Mér hefur aldrei liðið svona áður. Þetta er toppurinn á tilverunni og maður lifir fyrir svona augnablik,“ sagði Aron Einar Gunnarsson.

Ísland vann í kvöld 2-1 sigur á Skotum og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppni á EM í Danmörku í flokki U-21 liða.

Leikurinn var þó erfiður en Skotar voru erfiðir viðureignar fyrir íslensku strákana að þessu sinni.

„Við börðumst allir sem eitt lið eins og við höfum gert alla keppnina. Þetta var frábær frammistaða frá öllum leikmönnum og ég held að allir hafi verið búnir á því í lok leiksins.“

„Ég er mjög glaður með að hafa fengið að vera með í þessum leik. Ákvörðun KSÍ að við sem höfum verið að spila með A-landsliðinu fengum að vera með U-21 liðinu nú hefur skilað sínu og ég vona bara að Ísland taki Portúgal á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×