Íslenski boltinn

Orri Freyr: Hefði verið gaman að spila fyrir norðan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Orri Freyr Hjaltalín, leikmaður Grindavíkur.
Orri Freyr Hjaltalín, leikmaður Grindavíkur. Mynd/Vilhelm

Orri Freyr Hjaltalín, fyrirliði Grindvíkinga, var ánægður með að fá að mæta KA í 16-liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla en dregið var í dag.

Orri Freyr er sjálfur Akureyringur en er uppalinn hjá Þór, erkifjanda KA. Grindavík sló einmitt Þór úr leik í 32-liða úrslitum keppninnar.

„Ég spilaði síðast við KA árið 2007 og það verður gaman að fá að mæta þeim aftur nú. Við slógum út lið frá Akureyri í síðustu umferð og tökum þá hitt núna," sagði hann.

„Ég fann auðvitað til með Þórsurum í síðasta leik enda stóðu þeir sig vel og áttu meira skilið. En ég efast nú að maður eigi eftir að vorkenna KA-mönnunum," sagði hann í léttum dúr.

Grindavík hefur ekki átt góðu gengi að fagna í Pepsi-deildinni og vonast Orri til að bikarinn hafi jákvæð áhrif á liðið.

„Þetta hefur verið á uppleið hjá okkur að mér finnst en hlutirnir hafa einfaldlega ekki verið að falla með okkur. Við mættum ÍBV síðast og þá fannst mér leikurinn í ágætu jafnvægi. En þá misstum við mann af velli með rautt spjald og þá varð þetta mjög erfitt fyrir okkur."

„En við þurfum að vera áfram þolinmóðir og halda áfram að vinna okkar vinnu. Þá fara stigin að skila sér í hús."

„Bikarkeppnin er þó góð viðbót og það er gott að fá aðeins að breyta til - tæma hausinn og byrja upp á nýtt í annarri keppni. Það er vonandi að hún geti hjálpað okkur í deildinni."

Grindavík mætir KA á heimavelli en þar sem KA hefur spilað marga heimaleiki sína í 1. deildinni á Þórsvellinum var Orri spurður hvort hann hefði ekki frekar viljað fara norður.

„Jú, þetta er auðvitað stórfurðulegt að þeir skuli spila sína leiki á Þórsvellinum. Ég hefði alls ekki grátið það að fara norður enda vellirnir þar mjög góður og góð stemning á meðal áhorfenda."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×