Fótbolti

Gylfi Þór ekki heldur með

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Nordic Photos / Bongarts

Enn heldur áfram að kvarnast úr leikmannahópi íslenska landsliðsins sem mætir Ísrael ytra í vináttulandsleik á miðvikudagskvöld.

Eftir því sem kemur fram á mbl.is í kvöld mun Gylfi Þór Sigurðsson hafa meiðst í leik með Hoffenheim gegn Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni um helgina.

Alls hafa sjö leikmenn dregið sig úr íslenska landsliðshópnum fyrir leikinn á morgun. Hinir eru Árni Gautur Arason, Grétar Rafn Steinsson, Ragnar Sigurðsson Sölvi Geir Ottesen, Rúrik Gíslason, Jóhann Berg Guðmundsson og nú Gylfi Þór Sigurðsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×