Handbolti

Björgvin: Skuldaði strákunum þetta sigurmark

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Björgvin Þór Hólmgeirsson tryggði Haukum 23-22 sigur á Val fimm sekúndum fyrir leikslok í fyrsta úrslitaleik liðanna um titilinn sem fram fór á Ásvöllum í kvöld.

„Leikurinn er 60 mínútur," var það fyrsta sem fékkst upp úr Björgvini í leikslok en hann skoraði þarna sjötta markið sitt í leiknum. Björgvin skoraði annað mikilvægt mark rúmum tveimur mínútum áður þegar hann náði að jafna leikinn í 21-21 en Valsmenn höfðu þá verið yfir frá því í stöðunni 2-2 eftir rúmar sex mínútna leik.

„Við vorum að spila skelfilega sóknarlega og ég tek fyrri hálfleikinn alveg á mig. Ég var alveg út úr kortinu og ég skuldaði bara strákunum að skora þarna í lokin," sagði Björgvin í leikslok.

„Þetta er bara einn leikur og það þarf að vinna þrjá. Miðað við það hvernig Valsmennirnir spiluðu þá ætla þeir ekki að gefa neitt. Þeir voru mjög góðir í dag, skipulagðir og agaðir. Þetta verður hörku einvígi og allir leikirnir verða svona," sagði Björgvin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×