Handbolti

Anton og Hlynur dæma í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Anton Gylfi og Hlynur.
Anton Gylfi og Hlynur.

Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson munu dæma hjá Ingimundi Ingimundarsyni í Meistaradeild Evrópu um helgina.

Þeir munu dæma leik Valladolid og Álaborgar á Spáni á laugardaginn í C-riðli Meistaradeildarinnar.

Álaborg er í fjórða sæti riðilsins með þrjú stig en Valladolid er enn taplaust á toppnum með níu stig.

Þeir félagar hafa áður dæmt hjá stórliðum Evrópu fyrr á tímabilinu, til að mynda leiki með Rhein-Neckar Löwen og Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×