Handbolti

Pálmar Pétursson valinn í landsliðið

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Pálmar Pétursson hefur spilað þrjá landsleiki.
Pálmar Pétursson hefur spilað þrjá landsleiki. Fréttablaðið/Anton
Markmaðurinn Pálmar Pétursson úr FH verður í íslenska landsliðinu í handbolta sem spilar tvo æfingaleiki við Brasilíu í byrjun næstu viku.

Pálmar kemur inn í hópinn í stað Arons Rafns Eðvarðssonar, markmanns Hauka, sem er meiddur. FH-ingur inn fyrir Haukamann í landsliðinu.

Sverre Jakobsson fer ekki með landsliðinu þar sem hann giftir sig á Akureyri á morgun, Hreiðar Levý Guðmundsson spilar umspilsleiki um laust sæti í þýsku úrvalsdeildinni og fer því ekki með og hvorki Róbert Gunnarsson né Alexander Petersson fara með vegna persónulegra ástæðna.

Liðið fer út á sunnudag en leikirnir eru 16. og 18. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×