Íslenski boltinn

Blikastúlkur skoruðu átta mörk í fyrsta leiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Blikastúlkur fögnuðu mörgum mörkum í kvöld.
Blikastúlkur fögnuðu mörgum mörkum í kvöld.
Blikastúlkur byrjuðu Evrópukeppnina vel í kvöld með sannfærandi 8-1 sigri á eistneska liðinu Levadia Tallin. Riðill Blikaliðsins í forkeppni Meistaradeildarinnar fer fram í Kópavogi. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu fyrir Blika í leiknum.

Blikaliðið á eftir að spila á móti franska liðinu  Juvisy Essonne og rúmenska liðinu Targu Mures en efsta liðið í riðlinum tryggir sér sæti í 32 liða úrslitum.

Leikurinn var einstefna Blikastúlkna frá upphafi en þeim gekk illa að nýta sér yfirburðina og ná inn fyrsta markinu. Það var þó ekki eins og Breiðabliksliðið væri ekki að skapa sér færin enda fékk liðið mjög góð færi með reglulegu millibili allan fyrri hálfleikinn.

Sandra Sif Magnúsdóttir braut loksins ísinn á 25.mínútu en markið kom þó úr óvæntri átt. Sandra skoraði þá beint úr aukaspyrnu utan af vinstri kanti og af um 40 metra færi.

Sandra Sif lagði síðan upp næsta mark fyrir Gretu Mjöll Samúelsdóttur og í kjölfarið fylgdu tvö mörk á næstu fjórum mínútum.

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði þriðja markið með frábæru langskoti eftir laglegan einleik og Jóna Kristín Hauksdóttir gerði það fjórða eftir flottan undirbúning frá Fanndísi Friðriksdóttur.

Breiðabliksliðið hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik þótt að sóknarþunginn hafi ekki verið alveg eins mikill og í upphafi leiksins.

Harpa Þorsteinsdóttir kom Blikum í 5-0 á 52. mínútu eftir sendingu frá Jónu Kristínu Hauksdóttur og skömmu eftir að hafa fengið algjört dauðafæri.

Harpa launaði Jónu sendinguna fimm mínútum síðar og Jóna skoraði sitt annað mark í leiknum af mikill yfirvegun. Harpa skoraði sjöunda markið með laglegum skalla eftir aukaspyrnu Söndru Sifar en Eistarnir minnkuðu muninn mínútu síðar.

Harpa innsiglaði síðan þrennuna tveimur mínútum fyrir leikslok þegar hún skoraði að yfirvegin eftir að hafa fengið flotta sendingu frá Fanndísi.

Tölfræðin úr leiknum:

Breiðablik-Levadia Tallin 8-1

Kópavogsvöllur, 394 áhorfendur

Dómari: Rhona Daly, Írlandi

Mörkin:

1-0 Sandra Sif Magnúsdóttir (25.) - aukaspyrna

2-0 Greta Mjöll Samúelsdóttir (35.) - stoðsending Sandra Sif

3-0 Sara Björk Gunnarsdóttir (36.) - einleikur

4-0 Jóna Kristín Hauksdóttir (39.) - stoðsending Fanndís

5-0 Harpa Þorsteinsdóttir (52.) - stoðsending Jóna Kristín

6-0 Jóna Kristín Hauksdóttir (57.) - stoðsending Harpa

7-0 Harpa Þorsteinsdóttir (67.) - stoðsending Sandra Sif

7-1 Kaidi Jekimova (68.)

8-1 Harpa Þorsteinsdóttir (88.) - stoðsending Fanndís

Skot (á mark):  40-2 (19-2)

Varin skot: Katherine Loomis 1 - Karzetskaja 10

Horn: 5-1

Aukaspyrnur fengnar: 7-8

Rangstöður: 11-0

Breiðablik:

Katherine Loomis

Sandra Sif Magnúsdóttir

Anna Birna Þorvaldsdóttir

(55., Berglind Björg Þorvaldsdóttir)

Maura Ryan

Hekla Palmadottir

Hlín Gunnlaugsdóttir

Sara Björk Gunnarsdóttir

Harpa Þorsteinsdottir

Fanndís Friðriksdóttir

Jóna Kristín Hauksdóttir

(78. Arna Ómarsdóttir)

Greta Mjöll Samúelsdóttir

(67., Ásta Eir Árnadóttir )






Fleiri fréttir

Sjá meira


×