Formúla 1

Alguersuari og Buemi áfram hjá Torro Rosso

Jamie Alguersuari og Sebastian Buemi ásamt starfsmönnum Torro Rosso.
Jamie Alguersuari og Sebastian Buemi ásamt starfsmönnum Torro Rosso. Mynd: Getty Images
Torro Rosso liðið ítalska staðfesti í dag að Jamie Alguersuari og Sebastian Buemi verða áfram ökumenn Torro Rosso árið 2011. Franz Tost segir í frétt á autosport.com að þeir séu vel undirbúnir fyrir næsta tímabil, en þeir hafa ekið með liðinu á þessu ári. Buemi ók með liðinu í fyrra og Alguersuari byrjaði um mitt tímabilið. Tost segir að áframhaldandi vera ökumannanna sé rökrétt framhald af ungliðaáætlun Red Bull, sem ökumennirnir tveir hafa verið hluti af, en Alguersuari er 20 ára og Buemi 21. Sebastian Vettel var áður ökumaður Torro Rosso, áður en fyrirtækið færði hann yfir á Red Bull bíl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×