Íslenski boltinn

Hægt að horfa á bikarúrslitaleik FH og KR erlendis

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik FH og KR í sumar.
Úr leik FH og KR í sumar.
SportTV.is hefur komist að samkomulagi við leyfishafann Sport five um að senda útsendingu Stöðvar 2 Sport út svo Íslendingar erlendis geti séð bikarúrslitaleik FH og KR þó að þeir séu staddir erlendis.

Það er mikil eftirvænting fyrir leik FH og KR á morgun og hafa félögin og KSÍ sett stefnuna á það að bæta aðsóknarmetið á leikinn.

"Þeir sem eru staddir á Íslandi og vilja sjá leikinn jafnast auðvitað ekkert á við að fara á völlinn eða horfa á leikinn á Stöð 2 Sport. Íslendingar erlendis geta séð leikinn hér á SportTV fyrir litlar 1000 krónur íslenskar eða örfárar evrur, danskar krónur, dollara, yen eða hvaða sterka gjaldmiðil sem notaður er í viðkomandi landi," segir í frétt á sporttv.is.

Útsending Stöðvar 2 Sport hefst klukkan 17, að íslenskum tíma, með upphitun að hætti hússins og geta Íslendingar erlendis, sem hyggjast sjá leikinn hér á SportTV, fylgst með henni

Nánari upplýsingar er að finna á www.sporttv.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×