Íslenski boltinn

Margrét Lára og Katrín í liðinu - Þóra á bekknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Margrét Lára er í byrjunarliðinu. Mynd/Stefán
Margrét Lára er í byrjunarliðinu. Mynd/Stefán

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti nú í kvöld hvernig byrjunarlið Íslands verður í leiknum mikilvæga gegn Frökkum á morgun.

Bæði Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Margrét Lára Viðarsdóttir eru í liðinu þó svo þær hafi verið að glíma við meiðsli.

Markvörðurinn Þóra B. Helgadóttir getur ekki spilað og því mun Guðbjörn Gunnarsdóttir standa á milli stanganna á morgun.

Byrjunarliðið:

Markvörður

Guðbjörg Gunnarsdóttir

Hægri bakvörður

Rakel Hönnudóttir

Vinstri bakvörður

Ólína G. Viðarsdóttir

Miðverðir

Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Sif Atladóttir

Tengiliðir

Edda Garðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir

Hægri kantmaður

Dóra María Lárusdóttir

Vinstri kantmaður

Hólmfríður Magnúsdóttir

Sóknartengiliður

Margrét Lára Viðarsdóttir

Framherji

Dagný Brynjarsdóttir

Þær Harpa Þorsteinsdóttir, Sylvía Rán Sigurðardóttir og Thelma Björk Einarsdóttir verða ekki í leikmannahópnum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×