Íslenski boltinn

Blikar mæta FH og KR-ingar þurfa að fara til Eyja - dregið í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Blikar fagna bikarmeistaratitlinum í fyrrahaust.
Blikar fagna bikarmeistaratitlinum í fyrrahaust. Mynd/Daníel
Það verða tveir Pepsi-deildar slagir í 32 liða úrslitum VISA-bikar karla en dregið var í höfuðstöðum KSÍ nú í hádeginu. Bikarmeistarar Breiðabliks frá Íslandsmeistara FH í heimsókn í Kópavoginn og KR-ingar þurfa að sækja ÍBV heim til Vestmannaeyja.

Tuttugu félög komust í gegnum fyrstu tvær umferðirnar og nú bættust við Pepsi-deildar liðin tólf. Meðal annarra athyglisverða leikja er að Selfyssingar fara upp á Skaga, topplið 1. deildar Leiknir mætir Stjörnunni og Haukar taka á móti Fjölni.

Drátturinn í 32 liða úrslit VISA-bikars karla:

Víðir  (C-deild) - Fylkir (A-deild)

Fram (A)  - ÍR (B-deild)

Haukar (A)  - Fjölnir (B)

Víkingur (B) - Sindri (D)

Keflavík (A)  - KS/Leiftur  (C)

KA (B) - HK (B)

Grindavík (A)  - Þór Ak. (B)

KB (D) - Víkingur Ólafsvík (C)

Fjarðabyggð (B) - Njarðvík (B)

BÍ/Bolungarvík (C) - Völsungur (C)

Þróttur (B) - Grótta (B)

ÍA (B) - Selfoss (A)

Breiðablik (A)  - FH (A)

Leiknir (B) - Stjarnan (A)

Valur (A)  - Afturelding (C)

ÍBV (A) - KR (A)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×