Fótbolti

Spilafíkn fótboltamanna tekin fyrir á næsta súpufundi KSÍ

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Fyrsti súpufundur KSÍ sló í gegn á dögunum og nú er kominn að súpufundi númer tvö sem verður haldinni fimmtudaginn 8. apríl. Yfir 90 manns mættu á fyrsta fundinn en á þessum fundum er boðið upp á 30 mínútna fyrirlestur og svör við spurningum.

KSÍ mun síðan bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestri og þess vegna hefur hann fengið nafnið Súpufundur KSÍ.

Að þessu sinni mun fyrirlesari á vegum SÁÁ koma og flytja erindi um spilafíkn og það hvernig þjálfarar og aðrir innan knattspyrnuhreyfingarinnar geti greint einkenni spilafíknar og hvert eigi að snúa sér í þeim málum.

Fjárhættuspil leikmanna allt frá meistaraflokki og niður í yngri flokka hefur aukist mikið undanfarin ár og nú er svo komið að spilafíkn er vaxandi vandamál innan íþróttahreyfingarinnar.

Þessi annar fræðslufundur verður haldinn fimmtudaginn 8. apríl klukkan 12.15 á 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum áhugasömum en þó þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is og taka fram nafn, kennitölu og netfang.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×