Íslenski boltinn

Liechtenstein ekki unnið í þrjú ár en vann síðast Ísland

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári og landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson.
Eiður Smári og landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson. Fréttablaðið/Anton
Landslið Liechtenstein hefur ekki unnið landsleik síðan það sigraði Ísland 3-0 hinn 17. október 2007. Sá dagur er svartur dagur í íslenskri knattspyrnusögu.

Síðan þá hefur liðið spilað átján FIFA-leiki, tapað sextán þeirra og gert tvö jafntefli, á móti Aserbaídsjan og Finnlandi.

Meðal þessara sextán ósigra er 2-0 tap á móti Íslandi á La Manga í fyrra þar sem Arnór Smárason og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk Íslands.

Þjóðirnar hafa alls mætt fimm sinnum, Ísland hefur unnið fimm leiki en Liechtenstein náði jafntefli í Laugardal og vann heimaleikinn þegar þjóðirnir lentu saman í undankeppni EM 2008. Markatalan í leikjunum fimm er 11-4 Íslandi í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×