Íslenski boltinn

Utan vallar: Stjörnustælar hörundssára framherjans ná hámarki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eiður í leiknum gegn Liechtenstein.
Eiður í leiknum gegn Liechtenstein. Fréttablaðið/Anton
Stærsta knattspyrnustjarna Íslandssögunnar, Eiður Smári Guðjohnsen, sannaði endanlega í vikunni hversu hörundssár hann er með því að neita að tala við íslenska fjölmiðla í aðdraganda leiks Íslands og Liechtenstein sem og eftir leikinn.

Eiður hefur iðulega tekið gagnrýni íslenskra fjölmiðla illa. Skiptir engu þó sú gagnrýni hafi verið af afar skornum skammti í gegnum tíðina og ekkert í líkingu við það sem gerist erlendis.

Það er því erfitt að lesa annað út úr stöðunni en það megi ekki gagnrýna hann. Þá fari hann í fýlu. Það er sérstakt í ljósi þess að líklega enginn íslenskur íþróttamaður hefur fengið skrifaðar eins margar lofgreinar um sjálfan sig og Eiður.

Ég velti því síðan fyrir mér hvort þetta fjölmiðlabann sé aumkunarverð tilraun til þess að kúga íslenska fjölmiðla til þess að sleikja hann upp. Ef svo er þá mun það ekki virka. Eiði, líkt og öðrum, verður hampað þegar tilefni er til og að sama skapi verður hann gagnrýndur er hann þykir ekki standa sig. Það er eðli íþróttaumfjöllunar.

Eiður Smári er ekki hafinn yfir gagnrýni frekar en aðrir. Staðreyndir málsins eru þær að hann átti skelfilega lélegan síðasta vetur. Hrökklaðist markalaus með skottið á milli lappanna frá Monaco eftir arfaslaka frammistöðu til þess eins að taka sæti á bekknum hjá Tottenham.

Þar átti hann fáa spretti og skoraði aðeins tvö mörk allt tímabilið. Hvað landsliðið snertir átti hann enga gullleiki í þeim leikjum sem hentaði honum að spila. Það var því hægt að skrifa fátt jákvætt um hann síðasta vetur.

Með þessu fjölmiðlabanni gerir Eiður lítið annað en að valda sínum fjölmörgu aðdáendum á Íslandi vonbrigðum. Krakkarnir sem líta upp til hans, og greiða sig inn á leiki til að sjá hann spila, vilja lesa um skoðanir hans og framtíðarplön.

Hann hefur greinilega lítinn áhuga á að sinna þessu fólki og kýs frekar að vera í fýlu þar sem honum finnst greinilega að íslenskir fjölmiðlamenn séu svo vondir við sig. Þetta er ekkert annað en leiðinlegir stjörnustælar.




Tengdar fréttir

Eiður Smári talar ekki við íslenska fjölmiðla

Eiður Smári Guðjohnsen var hvergi sjáanlegur við upphaf morgunæfingar íslenska A-landsliðsins í fótbolta á Framvellinum í dag en KSÍ bauð þá íslenskum fjölmiðlum aðgengi að landsliðsmönnunum í tilefni af vináttulandsleik Íslands og Liechtenstein á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×