Íslenski boltinn

Víkingur frá Ólafsvík upp í 1. deild

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Víkingar fagna marki gegn FH.
Víkingar fagna marki gegn FH. Fréttablaðið/Daníel
Víkingar frá Ólafsvík eru komnir aftur upp í 1. deild karla eftir sigur á Hvöt í dag. Ólafsvíkingar höfðu mikla yfirburði í deildinni.

Reyndar eru fjórar umferðir enn eftir en Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði mark liðsins í dag.

Ólafsvíkingar eru fjórtán stigum á undan liðinu í þriðja sæti, Hetti, þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið er níu stigum á undan BÍ/Bolunggarvík sem er líklegt til að fylgja Ólafsvíkingum upp.

Þjálfari Ólafsvíkinga er Ejub Purisevic en liðið náði eins og allir vita einnig frábærum árangri í VISA-bikarnum í sumar þar sem það datt út í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×