Íslenski boltinn

Eggerti hefur gengið vel á Easter Road

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Edinborg skrifar
Eggert í fyrri leiknum.
Eggert í fyrri leiknum.

Eggert Gunnþór Jónsson á góðar minningar frá Easter Road, heimavelli Hibernian, þar sem leikur Skotlands og Íslands fer fram í kvöld.

Eggert er á mála hjá Hearts sem einnig leikur í Edinborg. Hann hefur sjö sinnum spilað með Hearts á Easter Road og aðeins tapað einu sinni.

"Ég þekki Easter Road mjög vel," er haft eftir Eggerti í skoskum fjölmiðlum í dag. "Stemningin verður sjálfsagt öðruvísi í kvöld en þegar Hearts spilar þar en ég hlakka mikið til leiksins í kvöld."

Hann sagði um leikinn í kvöld að þeir ætluðu að sækja, þrátt fyrir að jafntefli muni duga íslenska liðinu.

"Við hefðum átt að skora meira í fyrri leiknum og það voru ákveðin vonbrigði að gera það ekki. Ef við pökkum bara í vörn í kvöld mun það hafa hvetjandi áhrif á skoska liðið. Vonandi tekst okkur að byrja leikinn í kvöld á sömu nótum og sá síðasti endaði."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×