Körfubolti

Haukar einum sigri frá efstu deild

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Inge skoraði mest fyrir Hauka í gær.
Inge skoraði mest fyrir Hauka í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Haukar úr Hafnarfirði eru aðeins einum sigri frá því að komast upp í Iceland-Express deild karla í körfubolta. Haukar lögðu Val örugglega í fyrsta leik liðanna um sæti í deildinni í gær, 88-69.

KFÍ hafði áður tryggt sig upp í deildina en með sigri á morgun sigra Haukar í úrslitakeppni liða í sætum 2. til 5. Í 1. deild karla og komast þar með upp.

Semaj Inge var stigahæstur hjá Haukum í gær með 27 stig en hann lék áður með KR. Byron Davis skoraði 28 stig fyrir Val.

Liðin mætast aftur annað kvöld, nú í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×