Íslenski boltinn

Garðar Jóhannsson búinn að finna félag

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
AFP
Garðar Jóhannsson er búinn að finna sér lið á Norðurlöndunum og er hann í viðræðum um að ganga í raðir þess. Garðar var ófáanlegur til að segja frá hvaða landi liðið er.

„Það er verið að vinna í þessu og þetta mun skýrast í vikunni. Það er ekkert í hendi ennþá en ég má ekkert tala um þetta," sagði Garðar sem reiknar ekki með að fara á reynslu til félagsins fyrst heldur semja strax við það.

Garðar samdi við Stjörnuna með því skilyrði að fá að fara út ef félag í Evrópu sæktist eftir kröftum hans. Hann hefur aðeins spilað í fjórtán mínútur í sumar en gæti komið við sögu gegn Keflavík í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×