Handbolti

Ekkert stöðvar AGK

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Snorri var sterkur í kvöld.
Snorri var sterkur í kvöld.

Það er ekkert lát á góðu gengi danska ofurliðsins AGK sem vann enn einn leikinn í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Að þessu sinni lagði AGK lið Lemvig, 29-21.

Snorri Steinn Guðjónsson átti fínan leik fyrir AGK í kvöld og skoraði fjögur mörk. Arnór Atlason skoraði tvö fyrir topplið deildarinnar.

Ingimundur Ingimundarson og félagar í AaB lögði síðan Midtjylland, 30-27.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×