Íslenski boltinn

111 sæti skilja Íslandi og Andorra að

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari.
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari. Fréttablaðið/Stefán

Ísland hefur hækkað um eitt sæti á nýjasta styrkleikalista FIFA. Ísland situr í sæti númer 90.

Ísland hefur hækkað um fjögur sæti frá því í janúar. Landsliðið hefur spilað þrjá leiki það sem af er ári, alla í mars og hefur liðið ekki tapað neinum leik.

Ísland gerði markalaus jafntefli við Kýpur og Mexíkó og vann Færeyjar 2-0.

Andorra, sem Ísland mætir á laugardaginn í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, er í sæti númer 201 á listanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×