Íslenski boltinn

Sigurður vill halda áfram með landsliðið

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Samningur Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar með íslenska kvennalandsliðið rennur út eftir undankeppni HM sem lýkur á miðvikudag.

Sigurður vill framlengja samning sinn.

„Ég hef ekki hugmynd um það hvort samningurinn verði framlengur, það á eftir að ræða þau mál. Ég hef fullan hug á að vera áfram með liðið ef KSÍ vill semja aftur. Ég er stoltur af því að taka þátt í þessari uppbyggingu og er mjög ánægður í starfi. Ég held að ég geti komið liðinu enn lengra," sagði Sigurður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×