Íslenski boltinn

Leiknismenn börðust fyrir sigrinum og komust aftur á toppinn

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Kristján Páll í leiknum í kvöld.
Kristján Páll í leiknum í kvöld. Fréttablaðið/Anton
Leiknismenn endurheimtu toppsætið í 1. deild karla eftir frábæra endurkomu gegn Þrótti í kvöld. Leiknir hefur tveggja stiga forystu í deildinni.

Þróttarar komust yfir þegar Erlingur Jack Guðmundsson skoraði en Gunnar Einarsson jafnaði fyrir Leikni í seinni hálfleik.

Kristján Páll Jónsson tryggði Leikni svo sigur skömmu fyrir leikslok.

Þór lenti 0-2 undir gegn ÍA en jafnaði leikinn og lokatölur voru 2-2.

ÍR vann Fjarðabyggð 1-2 og þá tryggði David Diztl KA sigur á HK, lokatölur 1-0.

Smelltu hér til að sjá stöðuna í deildinni af heimasíðu KSÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×