Handbolti

Umfjöllun: FH aðeins of stór biti fyrir Völsung

Henry Birgir Gunnarsson á Húsavík skrifar
Spilandi þjálfari Völsungs, Vilhjálmur Sigmundsson, er hér kominn í gegnum vörn FH en skot hans fór í stöngina: Mynd/640.is
Spilandi þjálfari Völsungs, Vilhjálmur Sigmundsson, er hér kominn í gegnum vörn FH en skot hans fór í stöngina: Mynd/640.is

Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson skildi að milli Völsungs og FH í dag er liðin mættust í 32-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Annars voru liðin nokkuð jöfn. Það er kannski ekki fullur sannleikur en þetta var í það minnsta álit Húsvíkinga á leiknum.

FH vann leikinn með 23 marka mun, 23-46, og leiddi í hálfleik með ellefu mörkum, 10-21. Sex fyrstu mörk leiksins voru hraðaupphlaupsmörk hjá FH og róðurinn þungur fyrir heimamenn. Þrátt fyrir góð tilþrif á köflum tókst þeim ekki að vinna sig aftur inn í leikinn.

FH-ingar gáfu Völsungum engin grið í leiknum og keyrðu miskunnarlaust hraðaupphlaup í andlitið á þeim. Heimamönnum óx þó ásmegin eftir því sem leið á og var mörkum þeirra vel fagnað. Flestir leikmanna liðsins hafa ekki æft handbolta lengi og miðað við það var framganga heimamanna vaskleg og virðingarverð.

Heimamenn bentu á eftir leikinn að þeir hefðu skorað fleiri mörk en Haukar gegn FH og væru þar af leiðandi með betra sóknarlið en ríkjandi Íslandsmeistarar. Þingeyska hógværðin lætur ekki að sér hæða frekar en fyrri daginn.

Um 1.000 áhorfendur voru mættir á völlinn og mynduðu virkilega skemmtilega stemningu allan leikinn. Til fyrirmyndar en Völsungur var að spila sinn fyrsta alvöru handboltaleik í tíu ár.

Mikil handboltahátið var á Húsavík fyrir leikinn og Logi Geirsson leiddi handboltaæfingu hjá ungu krökkunum fyrir leik. Aðrir leikmenn FH slógust síðan í slaginn og úr varð hin besta skemmtun fyrir heimamenn.

Eftirminnilegur handboltadagur á Húsavík sem á vonandi eftir að virka sem vítamínsprauta á handboltastarfið í bæjarfélaginu.

Völsungur-FH 23-46 (10-21)

Mörk Völsungs: Jónas Friðriksson 5, Gunnar Illugi Sigurðsson 5/3, Guðbjartur Benediktsson 4, Alexander Jónasson 4, Einar Gestur Jónasson 2, Björgvin Vigfússon 1, Hallgrimur Steingrímsson 1, Gunnar Jósteinsson 1.

Varin skot: Aðalsteinn Friðriksson 10.

Hraðaupphlaup: 1 (Gunnar Illugi).

Fiskuð víti: 4 (Alexander 3, Guðbjartur).

Utan vallar: 6 mínútur.

Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 10/5, Ísak Rafnsson 8, Bjarki Jónsson 7, Bogi Eggertsson 6, Benedikt Kristinsson 5, Hermann Björnsson 4, Ari Þorgeirsson 3, Þorkell Magnússon 1, Ólafur Guðmundsson 1, Pálmar Pétursson 1.

Varin skot: Pálmar Pétursson 13, Daníel Andrésson 5.

Hraðaupphlaup: 20 (Benedikt 4, Bogi 4, Bjarki 4, Ísak 3, Þorkell, Ólafur, Ari, Hermann, 'Asbjörn).

Fiskuð víti: 6 (Atli Rúnar 2, Bogi 2, Bjarki, Benedikt)

Utan vallar: 4 mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×