Handbolti

Engin leiðindi í þessu máli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson mun ekki spila með íslenska landsliðinu í æfingaleikjum þess nú í júnímánuði, gegn Danmörku og Brasilíu, eins og til stóð.

Hann dró sig út úr landsliðshópnum af persónulegum ástæðum, sagði landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson í gær.

„Það eru engin leiðindi í þessu máli og hann er ekki hættur að spila með landsliðinu," sagði Guðmundur. „Hann er okkur afar mikilvægur og mun spila áfram með okkur. Hann dró sig út úr liðinu af persónulegum ástæðum og það er í raun ekkert meira að segja um það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×