Íslenski boltinn

Gylfi og Birkir einu nýliðarnir á móti Andorra - Eiður Smári ekki valinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson er loksins kominn í A-landsliðshópinn.
Gylfi Þór Sigurðsson er loksins kominn í A-landsliðshópinn. Mynd/AFP

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnti nú rétt áðan landsliðshóp sinn er mætir Andorra í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 29. maí kl. 16:00. Það vekur athygli að Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í hópnum en einu nýliðarnir eru Gylfi Þór Sigurðsson hjá Reading og Birkir Bjarnason hjá Viking.

Ólafur valdi ekki leikmenn frá Englandi í hópinn þar sem þeir eru allir farnir í frí eftir langt og strangt tímabil. Hann sagði Eið Smára Guðjohnsen ekki vera í standi til þess að spila þennan leik.

Liðið er mjög ungt og tíu leikmenn í hópnum eru enn gjaldgengir í 21 árs landsliðið. Árni Gautur Arason er leikreyndasti leikmaður hópsins með 70 leiki en Indriði Sigurðsson hefur leikið 52 leikir og Heiðar Helguason hefur spilað 47 A-landsleiki.

Þetta verður í fjórða skiptið sem karlalandslið þjóðanna mætast en Íslendingar hafa sigrað Andorra í hinum þremur leikjunum. Þjóðirnar spiluðu síðast á Laugardalsvellinum í ágúst 2002 þar sem Ísland vann öruggan 3-0 sigur.

Leikurinn er liður í undirbúningi fyrir riðlakeppni EM 2012 sem hefst í september þegar að Norðmenn mæta á Laugardalsvöll. Þetta er annar vináttulandsleikurinn sem fyrirhugaður er á Laugardalsvelli í ár, hinn fer fram 11. dag ágústmánaðar þegar Liechtensteinar koma í heimsókn.

Þetta er fjórði vináttulandsleikurinn af fimm á árinu en áður hafði íslenska landsliðið unnið 2-0 sigur á Færeyjum í Kórnum og gert markalaus jafntefli við Kýpur og Mexíkó.

Landsliðshópurinn á móti Andorra

Markmenn

Árni Gautur Arason, Odd Grenland (70 landsleikir)

Gunnleifur Gunnleifsson, FH (16)

Varnarmenn

Indriði Sigurðsson, Viking FK (52 landsleikir, 2 mörk)

Kristján Örn Sigurðsson, Hønefoss BK (44/4)

Sölvi Geir Ottesen Jónsson, Sønderjysk E (10)

Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Breiðablik (4)

Jón Guðni Fjóluson, Fram (2)

Skúli Jón Friðgeirsson, KR (2)

Miðjumenn

Aron Einar Gunnarsson, Coventry City FC (17)

Ólafur Ingi Skúlason, Sønderjysk E (11/1)

Rúrik Gíslason, OB (5)

Jóhann Berg Guðmundsson, AZ (5)

Eggert Gunnþór Jónsson, Heart of Midlothian FC (4)

Steinþór Freyr Þorsteinsson, Stjarnan (3)

Birkir Bjarnason, Viking Fk (Nýliði)

Gylfi Þór Sigurðsson, Reading FC (Nýliði)

Sóknarmenn

Heiðar Helguson, Watford FC (47/8)

Veigar Páll Gunnarsson, Stabæk IF (29/5)

Arnór Smárason, SC Herenveen (7/1)

Kolbeinn Sigþórsson, AZ (2/1)










Fleiri fréttir

Sjá meira


×