Íslenski boltinn

Heil umferð í 1. deild karla í kvöld

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Leifur Garðarsson fær ÍA í heimsókn í Víkina.
Leifur Garðarsson fær ÍA í heimsókn í Víkina. Fréttablaðið
Heil umferð fer fram í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. Einn leikur hefst núna klukkan sjö en fimm leikir klukkan 20.00.

Þróttur er í heimsókn á Akureyri þar sem það mætir Þór á Þórsvellinum en sá leikur hófst núna klukkan 19.

Efsta lið deildarinnar, ÍR, mætir Fjölni í Grafarvoginum og Leiknir sem er í öðru sæti leikur heima gegn Gróttu.

Leikir kvöldsins:

Þór - Þróttur

Njarðvík - HK

Víkingur - ÍA

Fjarðabyggð - KA

Leiknir - Grótta

Fjölnir - ÍR




Fleiri fréttir

Sjá meira


×