Handbolti

Víkingar fá liðsstyrk í 1. deildinni í handbolta

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sæþóri Fannberg, stjórnarformaður handknattleiksdeildar Víkings ásamt Brynjari.
Sæþóri Fannberg, stjórnarformaður handknattleiksdeildar Víkings ásamt Brynjari. Víkingur
Víkingar ætla sér rakleiðis upp í N1-deild karla í handbolta næsta vetur. Þeir fengu liðsstyrk í vikunni þegar Brynjar Hreggviðsson samdi að nýju við félagið.

Byrnjar kemur frá HK en hann er uppalinn í Víkinni.

Þá hefur félagið einni samið við Heiðar Örn Arnarson og endurnýjað samninga við Kristinn Guðmundsson, Jóhann Reyni Gunnlaugsson, Hermann Jóhannsson, Sigurð Örn Karlsson, Brynjar Loftsson og Jón Árna Traustason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×