Fótbolti

Áfangaleikur hjá þremur landsliðskonum

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Holmfríður í leiknum í gær.
Holmfríður í leiknum í gær. Fréttablaðið/Daníel
Þrír leikmenn íslenska kvennalandsliðsins náðu áfanga í landsleikjafjölda á árinu. Sara Björk Gunnarsdóttir og Rakel Hönnudóttir léku sinn 25. A-landsleik og Hólmfríður Magnúsdóttir lék sinn 50. A-landsleik.

Þær voru allar heiðraðar að loknum leik Íslands og Frakklands. Frá þessu er greint á heimasíðu KSÍ.

Af þessu tilefni fengu þær að gjöf glæsilegt úr fyrir 25 leiki og styttu fyrir 50. leiki, eins og hefð er fyrir er gert er ráð fyrir í reglugerð um veitingu landsliðs- og heiðursmerkja.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×