Íslenski boltinn

Heil umferð í 1.deild karla fór fram í dag - Úrslit og markaskorarar

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Helgi Sigurðsson tryggði sínum mönnum sigurinn gegn Leikni í dag.
Helgi Sigurðsson tryggði sínum mönnum sigurinn gegn Leikni í dag.
Í dag fór fram heil umferð í 1.deild karla en ÍR-ingar er á toppnum eftir sigur á KA, HK sigraði Gróttu á útivelli, Fjölnismenn kreystu fram jafntefli gegn Skagamönnum manni færri og Þórsarar sigruðu Njarðvík örugglega á Akuryeri. Gamli refurinn Helgi Sigurðsson tryggði sínum mönnum í Víkingi 2-1 sigur gegn Leikni en hann skoraði úr vítaspyrnu undir lok leiksins og Þróttur sigraði svo Fjarðabyggð á Valbjarnarvelli í markaleik. Úrslit og markaskorarar: ÍA 2 -2 Fjölnir 1-0 Hjörtur Júlíus Hjartarson ('27, víti) 1-1 Andri Júlíusson ('84) 2-1 Markaskorara vantar 2-2 Viðar Guðjónsson ('89) Rautt spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson ('27) (Fjölnir) Víkingur 2 - 1 Leiknir R. 0-1 Kjartan Andri Baldvinsson ('46) 1-1 Viktor Örn Guðmundsson ('50) 2-1 Helgi Sigurðsson ('90, víti) Grótta 1 - 2 HK ÍR 2 - 1 KA 1-0 Karl Brynjar Björnsson 1-1 Daniel Allan Stubbs 2-1 Haukur Ólafsson Rautt spjald: Guðmundur Óli Steingrímsson (KA) Þróttur R. 3 - 2 Fjarðabyggð 1-0 Halldór Arnar Hilmisson ('24) 2-0 Andrés Vilhjálmsson ('33) 2-1 Jóhann Benediktsson ('50) 3-1 Halldór Arnar Hilmisson ('56) 3-2 Aron Már Smárason ('79) Þór 4 - 0 Njarðvík 1-0 Sveinn Elías Jónsson 2-0 Sveinn Elías Jónsson 3-0 Ármann Pétur Ævarsson 4-0 Markaskorara vantar Markaskorarar fengnir frá Fótbolta.net.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×