Íslenski boltinn

Ísland tapaði ekki heima í fjögur ár - Glæsilegur árangur þurrkaður út

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur náð frábærum árangri með íslenska landsliðið.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur náð frábærum árangri með íslenska landsliðið. Fréttablaðið/Valli
Ísland vann níu leiki í röð á Laugardalsvelli og fékk ekki á sig mark í þessum leikjum. Þessi glæsilegi árangur þurrkaðist út í dag.

Ísland var búið að vinna alla leiki frá því það vann einmitt Frakka þann 16. júní árið 2007. Það snerist við í dag.

Síðasta tap Ísland kom gegn Svíum þann 26. ágúst 2006. Þá tapaði Ísland 0-4 í undankeppni EM.

Jörundur Áki Sveinsson var landsliðsþjálfari en hann var í banni í þessum leik og Elísabet Gunnarsdóttir stýrði því liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×