Íslenski boltinn

Greta Mjöll heldur áfram að skora fyrir Northeastern

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Greta Mjöll Samúelsdóttir í leik með Breiðabliki í sumar.
Greta Mjöll Samúelsdóttir í leik með Breiðabliki í sumar.
Greta Mjöll Samúelsdóttir var áfram á skotskónum með Northeastern háskólaliðinu um helgina en hún skoraði eitt marka liðsins í 3-1 sigri á New Hampshire Wildcats.

Greta Mjöll skoraði markið sitt með skalla eftir hornspyrnu en hún hefur nú skorað fimm mörk í fyrstu sjö leikjum liðsins. Greta Mjöll átti alls tíu skot í leiknum þar af fóru fimm þeirra á markið.

Northeastern háskólaliðið er í toppbaráttu svæðisdeildar sinnar en það hefur unnið 5 leiki og tapað tveimur. Félagi Gretu Mjallar í Breiðabliki og Northeastern, Sandra Sif Magnúsdóttir, er fastamaður í liði Huskies og lék einnig vel um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×