Handbolti

Aron Pálmarsson fer ekki með til Brasilíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Mynd/Anton

Aron Pálmarsson fer ekki með íslenska landsliðinu til Brasilíu og er enn einn sterkur leikmaður sem dettur út úr íslenska hópnum. Ástæðan eru meiðsli en þetta kom fyrst fram í hádegisfréttunum á Bylgjunni.

Sverre Jakobsson fer ekki með í ferðina til Brasilíu þar sem hann giftir sig á Akureyri í dag, Hreiðar Levy Guðmundsson spilar með Emsdetten um helgina í umspilsleik um laust sæti í þýsku úrvalsdeildinni og bæði Róbert Gunnarsson og Alexander Petersson fá frí í leiknum. Ólafur Stefánsson tók heldur ekki þátt í þessum júníleikjum vegna meiðsla.

Nú síðast bættist síðan Aron Pálmarsson í hóp þeirra fastamanna sem verða ekki með í leikjunum sem fara fram 16. og 18. júní.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×