Íslenski boltinn

KR-ingar verða appelsínugulir í bikarúrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Varabúningur KR er appelsínugulur.
Varabúningur KR er appelsínugulur.
FH og KR mætast í bikarúrslitlaleiknum á Laugardalsvelli klukkan 18.00 á laugardaginn og þar sem liðin spila í búningum í sömu litum þurfa KR-ingar að spila í varabúningi sínum í leiknum.

FH-ingar er skráðir sem heimalið og munu vera í sínum hvítu treyjum og svörtu buxum en KR-ingar mæta aftur á móti í appelsínugulum treyjum og hvítum buxum.

Þetta verður fyrsta sinn í sextán bikarúrslitaleikjum KR-inga (þar af einn hjá b-liðinu 1968) þar sem þeir mæta ekki svart-hvítir til leiks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×