Körfubolti

Línur skýrast í næstu viku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR. Mynd/Vilhelm

Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir að þjálfaramál deildarinnar ættu að skýrast í næstu viku.

Hvorki Páll Kolbeinsson, þjálfari karlaliðs KR, né heldur Benedikt Guðmundsson sem gerði kvennaliðið að Íslandsmeisturum í ár munu halda áfram með sín lið á næsta tímabili.

Böðvar sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að frekari frétta væri að vænta af þjálfaramálum í næstu viku.

Benedikt var einnig í starfi íþróttafulltrúa hjá KR en lætur sömuleiðis af því starfi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×