Íslenski boltinn

Ísland heldur sínu sæti á styrkleikalista FIFA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gunnleifur Gunnleifsson hefur ekki fengið á sig mark á árinu 2010.
Gunnleifur Gunnleifsson hefur ekki fengið á sig mark á árinu 2010. Mynd/Anton
Íslenska karlalandsliðið er áfram í 79. sæti á styrkleikalista FIFA en nýr listi var kynntur í morgun. Það voru ekki miklar breytingar á listanum enda fóru afar fáir leikir fram í mánuðinum eftir úrslitakeppni HM.

Ísland hækkaði sig um ellefu sæti á listanum síðast og hafði þá ekki verið hærra á listanum síðan í febrúar 2009.

Ísland er 62 sætum ofar á listanum en landslið Liechtenstein sem mætir á Laugardalsvöllinn í kvöld en Liechtenstein hefur ekki unnið landsleik síðan að þeir unnu 3-0 sigur á Íslandi árið 2007.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×