Íslenski boltinn

Rakel Logadóttir inn í Algarve-hópinn - Guðný meidd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rakel Logadóttir og Sif Atladóttir.
Rakel Logadóttir og Sif Atladóttir. Mynd/ÓskarÓ
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum sem tekur þátt á Algarve-bikarnum í byrjun mars.

Rakel Logadóttir kemur inn í hópinn í stað Guðnýjar Bjarkar Óðinsdóttur sem á við meiðsli að stríða. Rakel lék átta af tíu landsleikjum á síðasta ári og hefur alls leikið 24 landsleiki og skoraði í þeim eitt mark.

Kvennalandsliðið heldur til Algarve á mánudagsmorgun en fyrsti leikur Íslands er miðvikudaginn 2. mars þegar leikið verður við Svía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×