Formúla 1

Hætt við mótshald í Barein 13. mars

Mótsvæðið í Barein.
Mótsvæðið í Barein. Mynd: Getty Images
Yfirvöld og Formúlu 1 mótshaldarar í Barein hafa ákveðið að fyrsta Formúlu 1 mót ársins fari ekki fram 13. mars, vegna aðstæðna í landinu. Krónprinsinn í Barein, Salman bin Hamad bin Isa Al Kahlifa lét Bernie Ecclestone vita af þessu í símtali í dag, samkvæmt frétt á autosport.com. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins verður því í Ástralíu 27. mars.

Átök á milli mótmælenda og starfsmanna yfirvalda upp á síðkastið eru ástæða fyrir því að mótið hefur verið flautað af 13. mars, en dauðsföll og meiðsli hafa litið dagsins ljós í átökunum. Ecclestone lagði það i hendur Al Khalifa að ákveða hvort mótshald yrði í Barein eður ei og haft er eftir Al Khalifa á autosport.com að nauðsynlegt sé fyrir land sitt að leggja áherslu á þjóðarhag og vinna úr hinum sorglegu atburðum sem upp hafa komið í Barein.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvort móið í Barein verður haldið síðar á árinu. Mótshaldið í Formúlu 1 hefst i ljósi þessarar tilkynningar tveimur vikum síðar en til stóð og verður ekið á götum Melbourne í Ástralíu.

Til stóð að Formúlu 1 lið yrðu við æfingar í Barein dagana 3.-6. mars og úr því verður ekki heldur vegna ástandsins í Barein, eins og gefur að skilja




Fleiri fréttir

Sjá meira


×