Handbolti

Olsson og Lindgren munu þjálfa Svía áfram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Staffan Olsson er hér vígalegur á hliðarlínunni.
Staffan Olsson er hér vígalegur á hliðarlínunni.
Félagarnir Staffan "Faxi" Olsson og Ola Lindgren munu að öllu óbreyttu þjálfa sænska landsliðið í handknattleik áfram.

Gríðarleg ánægja er með störf þeirra félaga en þeir stýrðu sænska landsliðinu í fjórða sætið á HM í janúar.

Samningaviðræður standa yfir og vonast sænska handknattleikssambandið til þess að klára samning við þá félaga í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×