Handbolti

Snorri Steinn markahæstur í útisigri AG í Arósum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. Mynd/Heimasíða AG
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 7 mörk fyrir AG Kaupmannahöfn sem vann 30-24 útisigur á Århus Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. AG er með þrettán stiga forskot á Århus á toppnum og var búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn fyrir leikinn.

Snorri Steinn skoraði þrjú af sjö mörkum sínum af vítalínunni en hann skoraði einu marki meira en Niclas Ekberg sem var næstmarkahæstur. Arnór Atlason skoraði tvö mörk alveg eins og stórskyttan Mikkel Hansen.

AG byrjaði leikinn ekki vel og var 13-11 undir í hálfleik. Í seinni hálfleik voru AG-menn hinsvegar miklu sterkari og tryggðu sér sex marka sigur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×