Íris: Ég gæti alveg vanist þessu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. mars 2011 22:36 Íris, til hægri, með Fanneyju Guðmundsdóttur. Mynd/ÓskarÓ
Íris Ásgeirsdóttir, fyrirliði Hamars, tók við bikar í leikslok þrátt fyrir að Hamar tapaði 57-63 á móti KR í kvöld. Haukastelpurnar unnu í Keflavík og sáu til þess að Hamar er orðinn deildarmeistari í fyrsta sinn í sögunni. „Þetta er mjög skrítið og ég bjóst ekki við þessu á síðustu sekúndunni þegar ég sá að við vorum ekki með þetta," sagði Íris eftir leikinn. „Við lentum undir í fyrri hálfleik en vorum búnar að ná þeim strax í þriðja leikhlutanum og vorum komnar yfir í fjórða leikhlutan. Það var hinsvegar erfitt að koma til baka og við höfðum ekki orkuna í lokin," sagði Íris en Hamar lenti mest 17 stigum undir í fyrri hálfleiknum. „Gústi (Ágúst Björgvinsson þjálfari) sagði okkur að kíkja á bikarana í hálfleik og sjá hvort við vildum þetta ekki ekki öruggleg nógu mikið. Við vildum þetta alveg nógu mikið og ég held að við höfum sýnt það í þriðja leikhlutanum. Það vantaði bara aðeins upp á," sagði Íris en nú er úrslitakeppnin framundan. „Þetta verður bara erfiðara og erfiðara með hverjum leiknum og það er bara skemmtilegra. Það skiptir alveg gríðarlega miklu máli að vera með heimavallarréttinn í úrslitakeppninni og við sáum það náttúrulega í fyrra þegar við spiluðum oddaleikinn um titilinn út í KR," sagði Íris en Hamarsliðið tapaði þá fyrir KR í oddaleik um titilinn. Nú er hinsvegar fyrsti titilinn í höfn og Íris hefur beðið lengst eftir honum af öllum í liðinu enda búinn að spila með liðinu síðan að það var að byrja í 2. deildinni fyrir sex árum. „Ég er búin að bíða eftir þessu alltof lengi og það er bara það besta í heimi að vinna loksins titil. Ég gæti alveg vanist þessu," sagði Íris að lokum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira