Fótbolti

Ólafur ræddi ekki við Eið Smára

Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta valdi ekki Eið Smára Guðjohnsen í landsliðshópinn fyrir næsta verkefni A-landsliðsins gegn Kýpur í undankeppni Evrópukeppninnar. Ólafur sagði í samtali við Hans Steinar Bjarnason í gær að hann hefði ekki rætt við Eið Smára fyrir valið og þjálfarinn sagði ennfremur að það hefði ekki komið fram hvort Eiður væri hættur að gefa kost á sér í landsliðið.

„Staða hans í Englandi hjá þessum tveimur liðum hefur ekki verið eins og við höfum viljað. Hann er ekki að spila og ég sá ekki ástæðu til þess að velja hann," sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari m.a. í gær.

Ræddir þú eitthvað við Eið um þetta landsliðsval?

„Nei"

Hefur nokkuð komið upp í umræðunni að hann sé hugsanlega ða hætta í landsliðinu?

„Hann hefur ekki sagt mér það".

Ingvar Þór Kale, marvkörður Íslandsmeistaraliðs Breiðabliks var valinn í fyrsta sinn í landsliðið og Stefán Logi Magnússon markvörður Lilleström í Noregi kemur aftur inn í hópinn. Árni Gautur Arason markvörður er ekki valinn sem og Veigar Páll Gunnarsson leikmaður Stabæk.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir
:

Gunnleifur Gunnleifsson (FH)

Stefán Logi Magnússon (Lilleström)

Ingvar Þór Kale (Breiðablik)

Varnarmenn
:

Hermann Hreiðarsson (Portsmouth)

Indriði Sigurðsson (Viking)

Kristján Örn Sigurðsson (Hönefoss)

Grétar Rafn Steinsson (Bolton)

Birkir Már Sævarsson (Brann)

Ragnar Sigurðsson (Gautaborg)

Bjarni Ólafur Eiríksson (Stabæk)

Miðjumenn
:

Aron Einar Gunnarsson (Coventry)

Ólafur Ingi Skúlason (Sönderjyske)

Rúrik Gíslason (OB)

Arnór Smárason (Esbjerg)

Jóhann Berg Guðmundsson (AZ Alkmaar)

Eggert Gunnþór Jónsson (Hearts)

Birkir Bjarnason (Viking)

Guðmundur Kristjánsson (Breiðablik)

Gylfi Þór Sigurðsson (Hoffenheim)

Sóknarmenn
:

Heiðar Helguson (QPR)

Kolbeinn Sigþórsson (AZ Alkmaar)

Alfreð Finnbogason (Lokeren)


Tengdar fréttir

Eiður ekki í landsliðshópnum sem mætir Kýpur

Ólafur Jóhannesson þjálfari A-landsliðs karla í fótbolta tilkynnti í dag leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Kýpur sem fram fer 26. mars á Kýpur. Eiður Smári Guðjohnsen leikmaður Fulham er ekki í leikmannahópnum en alls eru 10 leikmenn úr U-21 árs landsliðinu valdir í þetta verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×